Friðarverðlaunahafi Nóbels:
Oscar Arias Sánchez friðarverðlaunahafi Nóbels og fyrrum forseti Costa Rica ritaði stuðningsgrein við forsetaframboð mitt í
Morgunblaðið 20 júní 2004. http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=3567157
Höfundur handbóka S.Þ. um friðarsamninga:
Dr. Johan Galtung prófessor um friðarrannsóknir og höfundur handbóka Sameinuðu Þjóðanna um friðarsamninga, flutti erindi í Háskóla Íslands í júni 2004 til stuðnings hugmyndafræði minni að forseti hafi frið á sinni stefnuskrá. 365 miðlar neitaði að ræða við Galtung um fyrirlesturinn og RÚV vildi heldur ekki fjalla um efni fyrirlestursins að neinu marki.
http://mbl.is/greinasafn/grein/803326/ Prófessor við friðarháskóla Evrópu:
Dr. Dietrich Fischer prófessor við friðarháskóla Evrópu og sem starfað hefur að afvopnunar- og þróunarmálum með Sameinuðu Þjóðunum skrifaði stuðningsgrein við forsetaframboð mitt í
Morgunblaðið 11 maí 2004. http://mbl.is/greinasafn/grein/797893/
Dr. Fischer mætti í 45 mínútna langt viðtal við Kastljós en aðstandendur RÚV ritskoðuðu viðtalið og klipptu í burt boðskap fræðimannsins um forsetaembættið. Sendu út nokkrar mínútur til málamynda.
Dr. Fischer var svo ofboðið að hann ritaði þessa grein í
Morgunblaðið 17 júní 2004:
http://www.mbl.is/greinasafn/grein/804251/
og þar segir m.a. "Ég verð að játa að ég er hneykslaður. Þessi leið til að hindra frjálsa og opna umræðu minnir einna helst á herferðina í Júgoslavíu árið 1992 þar sem talsmanni friðar, Milan Panic, var aftrað frá að kynna friðarstefnu sína fyrir kjósendum vegna þess að fjölmiðlum þar í landi var alfarið stjórnað af stuðningsmönnum þáverandi forseta landsins, Slobodan Milosevic."
UNESCO og Gríska réttrúnaðarkirkjan:
Eftir ferð mína til Baghdad árið 1996 útnefndi UNESCO, menningarstofnun Sameinuðu Þjóðanna mig til mannúðarverðlauna Grísku kirkjunnar (Holy Gold Cross). Mér voru síðan síðan afhent verðlaunin við hátíðlega athöfn í Grikklandi í kirkjuathöfn þar sem var reglu Móður Theresu voru einnig veitt sömu verðlaun. Ástæða þess að ég fékk verðlaunin var sögð sú að mér hefði tekist að koma friðarboðskap inní alþjóðlega fjölmiðla með svo áhrifamiklum hætti að það stöðvaði fyrirhugaða innrás bandaríkjanna í Írak í janúar 1997. Ferð mín til Baghdad var forsíðufrétt um allan heim og var ein helsta frétt samfleitt í 5 daga hjá bandarískum sjónvarpsstöðvum. Þetta hjálpaði til að koma af stað flóðbylgju alþjóðlegra mótmæla gegn fyrirhugaðri innrás.
Gandhi stofnunin:
Árið 1996 var Friði 2000 og mér afhent Gandhi mannúðarverðlaunin. Þetta var fyrir ferðir mínar til Hvíta Rússlands og Sarajevo með lyf, matvæli og gjafir og sjúkraflug með veik börn. Flug mitt með Boeing 737 þotu Altanta til Sarajevo var fyrsta borgaralega flugið eftir styrjöldina.